08.07.06 - 15:33
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Wilhelmsson til Nantes (Staðfest)

Christian Wilhelmsson

Mynd: Getty Images

Christian Wilhelmsson

Mynd: Getty Images
Nantes hefur gengið frá kaupunum á sænska landsliðsmanninum Christian Wilhelmsson frá Anderlecht eftir að félögin komust loks að samkomulagi eftir langar viðræður.
Nantes þurfta að borga 2,4 milljónir punda fyrir þennan snjalla kantmann sem skrifar undir þriggja ára samning við félagið. Hann er annar leikmaðurinn sem Anderlecht losar sig við á nokkrum dögum en Vincent Kompany gekk nýlega til liðs við Hamburg.
,,Samningurinn er góður og ég hlakka til þess að spila fyrir Nantes. Það er góð tilfinning að koma inní nýja deild. Franska deildin er í háum gæðaflokki og ég fæ möguleika á að spila gegn mörgum sterkum klúbbum. Við ætlum að stefna á topp fimm sem er ekki ómögulegt,” sagði Wilhelmsson.