Fotbolti.net
08.07.06 - 20:13
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Valeri Bojinov til Juventus (Staðfest)

Valeri Bojinov

Valeri Bojinov

Canon

Mynd: Getty Images

Búlgaríski sóknarmaðurinn Valerji Bojinov hefur gengið til liðs við ítölsku meistarana í Juventus frá Fiorentina á lánssamningi. Adrian Mutu var einmitt seldur frá Juve til Fiorentina í dag.
Eins og fyrr segir er þetta aðeins lánssamningur út tímabilið en með möguleika á að kaupa 50% af samningnum hans næsta sumar.

Þessi snjalli leikmaður kom til Fiorentina frá Lecce í janúar 2005 en náði aldrei að sanna sig hjá félaginu og skoraði aðeins átta mörk í 36 leikjum í deildinni.

Bojinov komst fyrst í sviðsljósið þegar hann varð yngsti leikmaður í sögu Serie A er hann kom inná aðeins 15 ára gamall í 3-1 tapi Lecce gegn Brescia í janúar 2002.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.