Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
banner
   mið 08. júlí 2020 14:23
Magnús Már Einarsson
KSÍ svarar gagnrýni KA á mannvirkjasjóð
Frá Greifavellinum.
Frá Greifavellinum.
Mynd: Raggi Óla
Úr leik KA og Breiðabliks.
Úr leik KA og Breiðabliks.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KSÍ hefur sent frá sér yfirlýsingu um mannvirkjasjóð sambandsins og umsókn KA í sjóðinn. Greifavöllurinn, heimavöllur KA, hefur verið mikið gagnrýndur á tímabilinu og Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri félagsins tjáði sig meðal annars um völlinn í vikunni.

„Önnur en skrýtnari staðreynd er sú að KA sótti um í mannvirkjasjóð KSÍ, þar sem óskað var eftir nokkrum milljónum til þess að vinna í Greifavellinum. Meða verka var að drena svæði þar sem vitað er að drenlagnir vallarins eru ónýtar. Stjórn KSÍ telur mikilvægara að setja pening í vallarklukkur í Kópavogi, inni battavöll í Kórnum, sæti á Hlíðarenda, búningsklefa á Hlíðarenda og Eyjum, sparkvöll á KR svæðinu, varamannaskýli í Árbæinn og Kópavog og vökvunarbúnað inni í Kór svo einhver dæmi séu tekin. Engar upplýsingar fást frá KSÍ vegna þess, en ef úthlutun úr mannvirkjasjóði eru skoðar þá vakna margar spurningar um úthlutunina úr þessum ágæta sjóði," sagði Sævar meðal annars í pistli sínum.

KSÍ hefur nú svarað með yfirlýsingu þar sem KA er hvatt til að endurnýja umsókn sína fyrir næstu úthlutun mannvirkjasjóðs á næsta ári.

Vegna umfjöllunar um mannvirkjasjóð KSÍ og umsókn KA í sjóðinn
Þrjátíu og sjö umsóknir bárust í mannvirkjasjóð KSÍ árið 2020 og er heildarkostnaður við áætlaðar framkvæmdir tæpir 5,6 milljarðar kr. Til úthlutunar í ár voru 30 milljónir og hlutu 20 verkefni styrk.

KA sótti um í mannvirkjasjóð KSÍ 2020 fyrir verkefni sem átti að ráðast í og ljúka á keppnistímabilinu 2020 (drenlögn á Akureyrarvöll). Ljóst er að afgreiðsla mannvirkjanefndar og stjórnar KSÍ á umsókninni ræður ekki úrslitum um ástand leikflatarins á Akureyrarvelli keppnistímabilið 2020.

Umsóknin fékk sömu umfjöllun hjá mannvirkjanefnd og stjórn KSÍ og aðrar umsóknir í mannvirkjasjóðinn. Fyrirliggjandi eru skorkort fyrir hverja umsókn og því mjög skýrt hvaða umsóknir ná að uppfylla skilyrði reglugerðar sjóðsins um styrk og hverjar ekki.

Öll verkefni sem bæta aðstöðu knattspyrnuhreyfingarinnar eru mikilvæg og myndi KSÍ gjarnan vilja styrkja sem flest þeirra. Fjármagnið í sjóðinn er hins vegar takmarkað og því eru umsóknir metnar samkvæmt gildandi skorkorti til að tryggja gegnsæi og stöðugleika við ákvarðanatöku.

Skv. áætlun Akureyrarbæjar um framtíðarkeppnisvöll félagsins þá mun hann verða byggður upp á félagssvæði KA. Ekki er hins vegar fyllilega ljóst hvenær aðalkeppnisvöllur KA verður kominn upp á félagssvæði KA og vonandi skýrist það sem fyrst. Engu að síður hefur KA verið hvatt til að endurnýja sína umsókn fyrir næstu úthlutun sjóðsins, sem mun liggja fyrir í apríl 2021.

Uppfært 14:25: KA sótti s.s. um í mannvirkjasjóð KSÍ 2020 fyrir verkefni sem átti að ráðast í og ljúka á keppnistímabilinu 2020 (drenlögn á Akureyrarvöll) en ekki 2021 eins og stóð upphaflega í grein KSÍ.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner