Fotbolti.net
08.07.21 - 22:55
Sigríður Dröfn Auðunsdóttir

Jóna: Það vantaði bara herslumuninn

Guðrún Jóna Kirstjánsdóttir þjálfari Hauka

Guðrún Jóna Kirstjánsdóttir þjálfari Hauka

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Hertz
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir þjálfari Hauka kom í viðtal eftir 0-0 jafntefli á móti ÍA í 9. umferð Lengjudeildar kvenna.
Hvernig fannst þér leikurinn?
"Þetta var bara frekar jafn leikur, baráttu leikur, grasið blautt og boltinn mikið út um allt og mér fannst við samt í seinni hálfleik, fáum víti, skot í slánna, þær fengu færi líka en ég hefði allavega viljað fá þrjú stig hérna í dag."

Hvað fannst þér vanta upp á til að ná í öll stigin?
"Það vantaði bara svona herslumuninn, vantaði bara aðeins hjá okkur að klára, fengum alveg færin en við samt sköpuðum kanski ekki jafn mikið og við höfum gert í síðustu leikjum en okkur vantaði bara að klára endapunktinn á þetta."

Viðtalið við Jónu má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.