12.10.26 - 00:18
Kári Snorrason
Ólafur Ingi: Þýðir ekkert að ræða það núna
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik vann 3-1 sigur á Keflavík í rokinu á Eikarvelli fyrr í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Ólaf Inga Skúlason, þjálfara Breiðabliks eftir leik.
„Það var alveg hvassviðri hérna og framan á okkur hérna í seinni hálfleik. En það er bara kredit á bæði lið fyrir að reyna að spila og gera eins gott úr þessu og hægt var miðað við aðstæður. Úr varð bara hin sæmilegasta skemmtun," sagði Ólafur aðspurður um sína sýn á leiknum.

Breiðablik hefur að litlu að keppa þar sem liðið hefur þegar tryggt sér þátttöku í Evrópukeppni á næsta ári með sigri í Mjólkurbikarnum. Ólafur var spurður hvort að það væri erfitt að mótivera hópinn í leikinn.
„Nei, ég myndi nú ekki segja það. Við erum búnir að æfa vel og við höfum bara verið að vinna í okkar leik. Við viljum enda þetta vel, það er alltaf gaman að spila í deildinni. Þó við séum komnir hérna í október og eins og þú segir, kannski ekki mikið undir, að þá tökum við þessum þremur leikjum bara alvarlega."
Mikið hefur verið rætt og ritað um hugsanleg félagaskipti. Eru Blikar farnir að huga að leikmannamálum fyrir næsta tímabil?
„Já, að sjálfsögðu erum við, ef ég á að viðurkenna þetta, að sjálfsögðu erum við að gera það. En það er svo sem, eins og þú kallar þetta, silly season. Það þýðir ekkert að ræða það akkúrat núna."
Andri Rafn Yeoman og Kristinn Jónsson verða báðir samningslausir eftir tímabil. Á að framlengja við þá?
„Það er bara í skoðun, þannig að við, þetta er bara nokkrir af þessum hlutum sem við þurfum að klára og það verður bara gert á næstu vikum."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.