12.10.26 - 00:39
Kári Snorrason
Sindri spurður út í mögulega heimkomu - „Las það einmitt á netinu“
Auglýsing

Samningur Sindra rennur út eftir tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samningur Sindra rennur út eftir tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst þetta vera leikur tveggja hálfleikja. Mér fannst Blikarnir betri í fyrri og við betri í seinni hálfleik. Ég held að allt hafi sýnt það nema markaskorunin í seinni hálfleik," sagði Sindri Snær Magnússon fyrirliði Keflavíkur eftir 3-1 tap liðsins gegn Breiðabliki fyrr í kvöld.
Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 1 Keflavík
Sindri rennur út af samningi í lok árs og var hann spurður hvað framtíðin bæri í skauti sér. En hann var orðaður við mögulega heimkomu aftur í ÍR í slúðurpakka sem birtist á Fótbolta.net á dögunum.
„Já, ég las það einmitt á netinu. Ég er leikmaður Keflavíkur og er að renna út af samningi. Ég er að tala við Keflavík og þarf að sjá hvað gerist. Ég er svo ungur að ég þarf bara að sjá hvað gerist."
„Já, ég las það einmitt á netinu. Ég er leikmaður Keflavíkur og er að renna út af samningi. Ég er að tala við Keflavík og þarf að sjá hvað gerist. Ég er svo ungur að ég þarf bara að sjá hvað gerist."
