Gæti Víkingur reynt við Jón Daða eða Árna Vill?

Jón Daði Böðvarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Verður Atli kallaður til baka?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Daði Böðvarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elías Már Ómarsson, markaskorari Víkings, er mögulega alvarlega meiddur á hné eftir að hann festist í grasinu á Víkingsvelli í leiknum gegn Györ í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í gær.
Um miðjan mánuðinn opnar félagaskiptaglugginn og í Innkastinu var því velt fyrir sér hvort Víkingur gæti brugðist við á félagaskiptamarkaðnum ef Elías verður frá út tímabilið.
Nikolaj Hansen kom inn sem varamaður fyrir Elías í gær og verður væntanlega aðal sóknarmaður Víkings meðan hann er á meiðslalistanum.
Í þættinum velti Tómas Þór Þórðarson því fyrir sér hvort Víkingur gæti reynt að fá Jón Daða Böðvarsson frá Selfossi. Fyrr á tímabilinu komu fréttir þess efnis að þessi fyrrum landsliðsmaður Íslands væri ekki alveg sáttur við stöðu mála hjá uppeldisfélagi sínu.

TENGT EFNI
Árni Vill í viðræðum við Stjörnuna
Einnig var þeim möguleika velt upp hvort Víkingur gæti lagt kapp á að fá Árna Vilhjálmsson sem nú er að skoða sína kosti hér á Íslandi og var sterklega orðaður við Stjörnuna.
Víkingur er með Atla Þór Jónasson á láni hjá Fram og hefur hann skorað fimm mörk í Bestu deildinni í sumar. Möguleiki er á að hann verði kallaður til baka í glugganum.
Aðrir kostir sem gætu allavega verið í umræðunni eru tveir fyrrum leikmenn Víkings; Viktor Jónsson hjá ÍA og Andri Rúnar Bjarnaon hjá Stjörnunni.