Mingueza fer til Crystal Palace

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Crystal Palace er að ganga frá félagaskiptum fyrir spænska bakvörðinn Óscar Mingueza sem kemur úr röðum Celta Vigo.
Mingueza er 27 ára gamall og er uppalinn hjá Barcelona. Hann var algjör lykilmaður í liði Celta á síðustu leiktíð og kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við félagið rann út.
Hann á fjóra landsleiki að baki fyrir Spán en er ekki í leikmannahópinum sem tekur þátt á heimsmeistaramótinu.
Mingueza verður líklega fyrsti leikmaðurinn sem Palace krækir í fyrir komandi leiktíð þar sem liðið mun leika undir stjórn Frakkans Pierre Sage, sem gerði frábæra hluti með Lens á síðustu leiktíð.
Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á félagaskiptin.