Fotbolti.net
08.07.26 - 17:52
Ívan Guðjón Baldursson

Vill alls ekki missa Diogo Costa

Vill alls ekki missa Diogo Costa
Canon

Mynd: EPA

Portúgalski landsliðsmarkvörðurinn Diogo Costa er afar eftirsóttur.
Porto deildarmeistari í 31. sinn
TENGT EFNI

Porto deildarmeistari í 31. sinn

Hann er lykilmaður í sterku liði FC Porto sem leikur undir stjórn Francesco Farioli og stóð sig mjög vel á milli stanga Portúgala á heimsmeistaramótinu.

Portúgal datt úr leik gegn nágrönnum sínum frá Spáni í 16-liða úrslitum og átti Costa mjög góðar vörslur, en tókst ekki að koma í veg fyrir eina mark leiksins.

„Við viljum alls ekki selja Diogo. Við munum loka flugvellinum eftir að hann lendir," segir Farioli.

Costa er 26 ára gamall og með fjögur ár eftir af samningi við Porto, sem er hans uppeldisfélag. Hann hefur alla tíð leikið fyrir Porto og verið lykilmaður fyrir Portúgal, með 48 A-landsleiki að baki og 66 leiki fyrir yngri liðin.

Costa er með 60 milljón evra riftunarákvæði í samningi sínum við félagið.
Vill alls ekki missa Diogo Costa
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.