Jorge Jesus búinn að samþykkja að taka við Portúgal

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það er svo gott sem staðfest að Jorge Jesus muni taka við portúgalska landsliðinu eftir að Roberto Martínez sagði af sér eftir að Portúgal var slegið úr leik í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins á dögunum.
Portúgalir töpuðu fyrir Spánverjum og fá núna heimamann til að taka við keflinu á landsliðinu, en þetta er í fyrsta sinn sem Jesus tekur við landsliði.
Jesus vann sádi-arabísku deildina með Cristiano Ronaldo og Al-Nassr á síðustu leiktíð eftir að hafa einnig unnið titla með Flamengo, Fenerbahce, Al-Hilal, Sporting CP, Benfica og Braga á frábærum ferli.
Jesus, sem verður 72 ára seinna í júlí, mun vera við stjórnvölinn næstu árin. Talið er að hann fái fjögurra ára samning til að stýra Portúgölum í Þjóðadeildinni, á EM 2028 og HM 2030 sem verður á heimavelli.
Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn á skiptin.