Fotbolti.net
08.07.26 - 15:01
Kári Snorrason

Daníel Tristan í litlu hlutverki - Á förum frá Malmö?

Á sex landsleiki að baki.

Á sex landsleiki að baki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Tristan Guðjohnsen hefur verið í takmörkuðu hlutverki hjá Malmö á tímabilinu.

Eftir að hafa átt gott síðasta tímabil, þar sem hann var jafnmarkahæsti leikmaður liðsins, hefur hann aðeins verið í byrjunarliðinu í einum af fyrstu ellefu deildarleikjum liðsins.

Í samtali við Fotbollskanalen segir hann stöðuna ekki vera frábæra og ætlar hann að huga að framtíðinni.
„Það er ljóst að staðan fyrir mig núna hefur ekki verið eins og best verður á kosið. En maður verður að halda áfram að leggja sig fram og reyna að ná sætinu einhvern veginn.“

„Ég er tvítugur og ég þarf að spila, og ég þarf að spila til að þroskast eins mikið og mögulegt er. Þannig að núna finnst mér ég þurfa að hugsa mikið um framtíð mína. Svo við sjáum til,“
segir Daníel.

Gengi Malmö hefur verið langt undir væntingum og urðu þjálfarabreytingar hjá félaginu nýverið. Hann segist ætla að sjá hvernig gengur undir nýjum þjálfara.

„Já, auðvitað. Það er sumar núna og við sjáum hvað gerist. Maður veit aldrei í fótbolta þannig að við sjáum til,“ segir Daníel jafnframt.

Hann var í fyrra orðaður við enska B-deildarfélagið Sheffield. Daníel á að baki sex A-landsleiki og 27 leiki fyrir yngri landsliðin.
Skoraði fimm mörk í Allsvenskan á síðasta tímabili.

Skoraði fimm mörk í Allsvenskan á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Malmö FF

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.