Sölvi Vatnhamar: Við vorum mjög ánægðir með þennan drátt

Sölvi í leik fyrir Víking Götu

Mynd: sosialurin.fo

Sölvi í leik fyrir Víking Götu

Mynd: sosialurin.fo
Víkingur Götu frá Færeyjum voru mættir á Stjörnuvöllinn í kvöld á leiðinni á æfingu, þar sem þeir mæta einmitt Stjörnunni á morgun í fyrstu umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar. Sölvi Vatnhamar, leikmaður liðsins og eldri bróðir Gunnars Vatnhamar leikmaður Víkings Reykjavíkur mætti í viðtal um leikinn.
„Þetta er mjög spennandi leikur fyrir okkur þar sem við erum með mjög ungt lið. Við erum ekki með mikla reynslu í liðinu þegar kemur að evrópuleikjum. Við höfum vaxið inn í tímabilið hjá okkur, þannig við erum að verða tilbúnir. Við erum mjög spenntir fyrir leiknum," sagði Sölvi.
Sölvi ræddi einnig bróður sinn, og hans velgengni síðan hann kom til landsins.
„Ég reyni að sjá alla leiki sem hann spilar í þegar ég get. Hann er að spila mjög vel, ég sé að hann heldur bara áfram að bæta sig. Hann stendur sig einnig mjög vel með landsliðinu, sem ég held að sé útaf því að hann er spila á hærra stigi daglega. Það er mjög spennandi fyrir hann. Ég hef verið hérna einu sinni áður, þar sem ég sá hann spila bikarúrslitaleik. Þeir unnu þann leik, þannig það var skemmtilegt. Því miður sáum við hann ekki spila í gær, en núna er einbeitingin á okkar leik, og kannski kemur hann og horfir á okkur spila á morgun," sagði Sölvi.
Gunnar er uppalinn leikmaður Víkings í Götu, og því líklegt að hann muni styðja sína menn til dáða á morgun.
„Hann ber sterkar tilfinningar til uppeldisfélagsins. Hann ólst upp í Víking, spilaði marga leiki og óx sem leikmaður. Þannig ég held hann beri sterkar tilfinningar til félagsins, og verði hér að horfa á okkur og styðja okkur," sagði Sölvi.
Gunnar er auðvitað varnarmaður á meðan Sölvi spilar töluvert framar á vellinum. Sölvi segir að það sé ekki margt líkt í þeirra leikstíl.
„Ekki mikið sem leikmaður, en við leggjum báðir að okkur. Þar erum við líkastir, en annars erum við gjörólíkir leikmenn," sagði Sölvi.
Færeysku Víkingarnir hafa ekki tapað leik síðan í Apríl og eru í 4. sæti deildarinnar heima fyrir.
„Við höfum breytt miklu núna fyrir tímabil. Þannig við erum með eiginlega nýtt og ungt lið. Við erum lið sem reynum að blóðga okkar eigin ungu leikmenn. Það tekur auðvitað tíma, og við höfum gert mikið af jafnteflum, sérstaklega til að byrja með. Ég held að ryþminn í okkar leik, og okkar leikstíll er töluvert betri núna. Við sjáum það sjálfir að þetta er betra, og finnum fyrir hvoröðrum betur inn á velli. Þannig við erum að vaxa sem lið, og það verður spennandi að sjá hvort við séum tilbúnir í svona stóra áskorun. Síðustu 3-4 leikir á tímabilinu höfum við spilað við bestu liðin í Færeyjum og staðið okkur mjög vel. Þannig vonandi getum við haldið því gengi áfram, náð í úrslit á morgun og haldið einvíginu á lífi fyrir heimaleikinn okkar," sagði Sölvi.
Sambandið milli þessara landa hefur alltaf verið gott, og Sölvi tók undir það. Hann er hins vegar spenntur fyrir því að reyna að slá út „stóra bróðir".
„Við munum leggja okkur alla fram í þetta. Okkur líður eins með það að löndin okkar eru mjög náin, við höfum verið hérna nokkrum sinnum í æfingarferðum. Það hefur alltaf verið mjög fínt að vera hér, við njótum þess mjög að koma hingað og við vorum í raun mjög ánægðir að fá þennan drátt. Til þess að geta komið aftur til Íslands," sagði Sölvi.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.



