Fotbolti.net
08.07.26 - 18:46
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Dybala verður áfram í Róm

Dybala verður áfram í Róm
Canon

Mynd: EPA

Argentínumaðurinn knái Paulo Dybala verður áfram í ítölsku höfuðborginni þar sem hann mun spila undir leiðsögn Gian Piero Gasperini hjá AS Roma.
Dybala vill spila í úrvalsdeildinni
TENGT EFNI

Dybala vill spila í úrvalsdeildinni

Dybala er 32 ára gamall og hefur spilað 140 leiki á fjórum árum í Róm. Hann gerir eins árs samning með möguleika á eins árs framlengingu.

Dybala tekur verulega launalækkun á sig og segja ýmsir miðlar að launin hans á tímabilinu verði mestmegnis árangurstengd. Grunnlaunin eru sögð lækka um rúmlega helming og eru því næstum þrefalt lægri en þau voru í gamla samningnum.

Þessi sóknarleikmaður kom að 11 mörkum í 27 leikjum á síðustu leiktíð með Roma en var ekki valinn í argentínska landsliðshópinn fyrir HM. Hann á 40 landsleiki að baki og varð heimsmeistari með Argentínu 2022.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.