Fotbolti.net
08.07.26 - 16:11
Kári Snorrason

Spenntur að spila undir Óla aftur - „Draumur að vinna bikar með Blikum“

Á láni hjá Blikum út tímabilið.

Á láni hjá Blikum út tímabilið.

Canon

Mynd: Breiðablik

Hlynur Freyr Karlsson var fyrr í dag kynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks. Hann gengur til liðs við Blika frá sænska félaginu Brommapojkarna á láni.

Hlynur hefur einungis komið við sögu í einum leik í sænsku úrvalsdeildinni á tímabilinu en samningur hans við Brommapojkarna rennur út í lok árs.

Hlynur, sem er uppalinn í Breiðabliki, ræddi við Arnar Laufdal á samfélagsmiðlum Breiðabliks um skrefið aftur á Kópavogsvöll.
Hlynur Freyr í Breiðablik á láni (Staðfest)
TENGT EFNI

Hlynur Freyr í Breiðablik á láni (Staðfest)

Hlynur var undir Ólafi Ingi Skúlasyni hjá U21 landsliðinu. „Við erum mikið búnir að vinna saman og ég er ógeðslega spenntur að vinna undir honum aftur.“

Hlynur er uppalinn hjá Breiðabliki og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með liðinu árið 2020, þá aðeins 16 ára gamall. Hann segir aðstöðuna hjá Blikum hafa tekið miklum breytingum. „Það er mjög mikið búið að breytast. Allt komið á hærra plan, sem er frábært og geggjað fyrir alla.“

Svissneskur vasahnífur
„Ég get leyst nokkrar stöður á vellinum, það mætti alveg kalla mig svissneskan vasahníf. Mín helsta staða núna er hafsent og ég hef spilað það mest síðustu árin. En eins og ég segi get ég líka leyst fleiri stöður,“ segir Hlynur og telur hann sig koma með jákvæða orku og drifkraft inn í liðið.

Hlynur fær leikheimild hjá Breiðabliki eftir leikinn gegn Keflavík. Hans fyrsti leikur gæti því verið gegn FH sem fram fer á Kaplakrikavelli 20. júlí.

Draumur að vinna titil með Blikum
Breiðablik tryggði sig í úrslit Mjólkurbikarsins með 3-0 sigri á Víkingi í undanúrslitum fyrir rúmum tveimur vikum síðan. Liðið mætir annað hvort Fylki eða Aftureldingu í úrslitaleik bikarsins.

„Ég ólst hérna upp í Breiðabliki og það yrði draumur að vinna bikar með Blikunum,“ segir Hlynur að lokum.

Var undir Ólafi Inga hjá U21 landsliðinu.

Var undir Ólafi Inga hjá U21 landsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lék með Val 2023.

Lék með Val 2023.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.