Fotbolti.net
08.07.26 - 21:54
Ívan Guðjón Baldursson
Gatorade

Gatorade bikar Fótbolta.net: Fjölnir óvænt úr leik í Grafarvogi

Gatorade bikar Fótbolta.net: Fjölnir óvænt úr leik í Grafarvogi
Canon

Mynd: Aðsend

Dramatíkin var við völd í 16-liða úrslitum Gatorade bikars Fótbolta.net í kvöld.
Fimm leikir hófust á sama tíma og fóru þrír þeirra í framlengingu og tveir í vítaspyrnukeppni eftir fjörugar markaveislur.

Reynir Sandgerði fer áfram í næstu umferð eftir glæsilegan endurkomusigur gegn KH á Hlíðarenda. KH komst í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik en Sandgerðingar jöfnuðu í síðari hálfleik og gerðu sigurmark í framlengingu.

Merkilegustu úrslitin litu dagsins ljós í Grafarvogi þegar Fjölnir og Álftanes tókust á í verulega dramatískum leik. Staðan var jöfn, 1-1, eftir venjulegan leiktíma svo grípa þurfti til framlengingar þar sem fjögur mörk bættust við.

Álftanes, sem er að gera frábæra hluti í 4. deild í ár, náði forystunni á 119. mínútu en Egill Otti Vilhjálmsson náði að jafna á lokamínútunum til að knýja fram vítaspyrnukeppni, staðan 3-3. Heimamenn í liði Fjölnis, sem leika í 2. deild, brenndu tvisvar sinnum af í vítakeppninni og duttu því óvænt úr leik.

Að lokum áttust Kormákur/Hvöt og Kári við á Blönduósi og skiptust liðin á að skora. Heimamenn leiddu stærsta hluta leiksins en Skagamenn jöfnuðu á lokamínútunum til að fara með leikinn í framlengingu.

Kári náði svo forystunni í framlengingu en Sigurður Bjarni Aadnegard gerði afar dramatískt jöfnunarmark á 121. mínútu, svo lokatölur urðu 3-3 og þurfti að útkljá viðureignina í vítaspyrnukeppni.

Þar höfðu heimamenn betur eftir að Skagamenn brenndu tveimur spyrnum af.

KH 2 - 3 Reynir Sandgerði
1-0 Tristan Snær Daníelsson ('6)
2-0 Luis Carlos Cabrera Solys ('38)
2-1 Gísli Grétar Sigurðsson ('51)
2-2 Jordan Smylie ('67)
2-3 Ísak Daði Ívarsson ('98)

Lestu um leikinn: KH 2 - 3 Reynir S.

Fjölnir 3 - 3 Álftanes
1-0 Aron Sölvi Róbertsson ('54)
1-1 Bessi Thor Jónsson ('65)
2-1 Árni Steinn Sigursteinsson ('110)
2-2 Markús Pálmi Pálmason ('112)
2-3 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('119)
3-3 Egill Otti Vilhjálmsson ('120)
3-4 í vítaspyrnukeppni

Lestu um leikinn: FJölnir 6 - 7 Álftanes

Kormákur/Hvöt 3 - 3 Kári
0-1 Benedikt Ísar Björgvinsson ('20)
1-1 Pere Belmonte ('30, víti)
2-1 Guzman Díaz Scarone ('35)
2-2 Stefán Logi Sigurjónsson ('88)
2-3 Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson ('110)
3-3 Sigurður Bjarni Aadnegard ('121)
4-1 í vítaspyrnukeppni

Lestu um leikinn: Kormákur/Hvöt 7 - 4 Kári
Gatorade bikar Fótbolta.net: Fjölnir óvænt úr leik í Grafarvogi
Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Gatorade bikar Fótbolta.net: Fjölnir óvænt úr leik í Grafarvogi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.