Fotbolti.net
08.07.26 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson

Brynjólfur skoraði í tapi - Alfons byrjaði

Brynjólfur skoraði í tapi - Alfons byrjaði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í æfingaleikjum dagsins í Evrópu. Þar var Brynjólfur Andersen Willumsson í byrjunarliði Groningen og skoraði fyrsta mark leiksins í tapi gegn Heracles.
Brynjólfur náði forystunni á 63. mínútu en Heracles snéri stöðunni við, svo lokatölur urðu 2-1. Þetta er fyrsta markið sem hann skorar á árinu, eftir að hafa byrjað síðustu leiktíð af miklum krafti í ágúst í fyrra missti hann dampinn fljótt.

Nóel Atli Arnórsson var þá í byrjunarliðinu þegar Álaborg gerði jafntefli við Randers á meðan Willum Þór Willumsson var í byrjunarliði NEC Nijmegen í tapi gegn Duisburg.

Alfons Sampsted var að lokum í byrjunarliðinu í sigri hjá Go Ahead Eagles á meðan Stefán Ingi Sigurðarson byrjaði á bekknum

Heracles 2 - 1 Groningen
0-1 Brynjólfur Andersen Willumsson ('63)
1-1 M. Benita ('70)
2-1 J. Zamburek ('85)

AaB 2 - 2 Randers

NEC Nijmegen 2 - 3 Duisburg

Go Ahead Eagles 2 - 1 Almere City

Aarhus Fremad 1 - 0 Silkeborg

Kolding 1 - 0 Vendsyssel

Eltersdorf 0 - 3 Greuther Furth

St. Tonis 0 - 5 Fortuna Dusseldorf
Brynjólfur skoraði í tapi - Alfons byrjaði
Canon

Mynd: Go Ahead Eagles

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.