Fotbolti.net
08.07.26 - 17:13
Kári Snorrason

Óvíst með Elías og Vatnhamar tognaður - „Reikna ekki með að fá einhvern inn“

Fór sárþjáður af velli.

Fór sárþjáður af velli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elías Már Ómarsson meiddist illa á hné í leik Víkings og Györ í forkeppni Meistaradeildarinnar í gær.

Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála Víkings, segir í samtali við Fótbolta.net að verið sé að bíða eftir niðurstöðum úr myndatöku vegna meiðsla Elíasar.

Aðspurður um hvort óttast sé um krossbandaslit segist Kári ekki ætla að fara að mála skrattann á vegginn. „Við vonum það besta. Ég er enginn sérfræðingur í þessu en það er svolítið skrítið hvernig þetta lítur út í sjónvarpinu. Það er erfitt að segja til um það,“ segir Kári.
Gunnar tognaður í rassvöðva
Gunnar Vatnhamar átti að byrja leikinn en Víkingur neyddist til að gera breytingu á liðinu skömmu fyrir leik eftir að sá færeyski meiddist.

Kári segir Gunnar sennilega hafa tognað í rassvöðva.

Þá var Oliver Ekroth byrjaður að kveinka sér undir lok leiks en Kári segir hann einungis hafa stífnað upp og ekki um meiðsli að ræða.

Býst ekki við að sækja mann inn í staðinn
Skyldi illa fara með Elías, munuð þið líta í kringum ykkur á leikmannamarkaðinum?

„Við erum með helling af leikmönnum og sterkan hóp. Við sjáum Niko koma inn og klára leikinn fyrir okkur. Daði Berg er kominn aftur og Stígur er allur að koma til. Þannig að við erum með tvo ferska að koma inn. Ég reikna ekki með því að einhver verði keyptur eða fenginn, við verðum bara að sjá til og vona það allra besta með Elías.“

Geta kallað Atla Þór til baka
Atli Þór Jónasson hefur leikið vel með Fram á tímabilinu á láni frá Víkingi. Hann hefur skorað sjö mörk í tíu deildarleikjum á tímabilinu.

„Við eigum möguleika á að kalla hann til baka en hann er að standa sig gríðarlega vel með Fram - kominn í flæði þar. Auðvitað vill maður sjá hann blómstra. Ef við metum það þannig að hann sé að fara byrja leiki fyrir Víking þá er sjálfsagt að skoða það.“

„Þetta er eitthvað sem við ræðum í rólegheitunum, við erum ekkert að panikkera. Við erum með nóg af góðum leikmönnum og vonum það allra besta með Elías,“
segir Kári að lokum.
Tognaður í rassvöðva.

Tognaður í rassvöðva.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári Árnason.

Kári Árnason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skorað sjö mörk í tíu leikjum.

Skorað sjö mörk í tíu leikjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.