Fotbolti.net
08.07.26 - 20:01
Haraldur Örn Haraldsson

Kaj Leo hefur fylgst með íslenska boltanum - „Þeir eru með gott lið og með góða leikmenn"

Auglýsing
Kaj Leo í leik fyrir Leikni árið 2023

Kaj Leo í leik fyrir Leikni árið 2023

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kaj Leo í Bartalsstovu er flestum áhugmönnum um íslenskan fótbolta kunnugur en hann spilaði hér á landi, en hann spilaði hér á landi 232 leiki frá árunum 2016-2025. Hann er nú mættur til landsins til að spila fyrir færeyska liðið Víking frá Götu, en Kaj er Færeyingur. Þeir mæta Stjörnunni á morgun í fyrstu umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.

„Það er bara mjög gaman (að vera kominn aftur til Íslands), það er rúmlega ár síðan ég fór frá Íslandi. Þannig það er bara mjög gaman að koma aftur," sagði Kaj.

Kaj hefur auðvitað mætt Stjörnunni oft áður en er spenntur að fá að spila gegn þeim fyrir færeyskt lið.

„Þetta er bara mjög spennandi. Stjarnan eru búnir að ná í nokkra mjög góða leikmenn, ég er búinn að fylgjast með en ekkert það mikið. Ég held að þetta verður bara mjög skemmtilegur og spennandi leikur. Þeir eru með mjög gott lið og með góða leikmenn," sagði Kaj.

Kaj hefur þá auðvitað reynslu á að spila gegn Stjörnunni og að spila undir Jóni Þór þjálfara Stjörnunnar sem hann getur miðlað til liðsfélaga sinna.

„Ég er ekkert það góður taktískt séð. Ég hef bara talað um 'standardinn' á liðinu, hversu góðir þeir eru og 'tempóið'. Ég held að þetta getur verið leikur sem fer í báðar áttir. Ef við verðum tilbúnir í þennan leik þá held ég að þetta verði mjög skemmtilegt," sagði Kaj.

Færeysku Víkingarnir hafa ekki tapað leik síðan í Apríl og eru í fjórða sæti í deildinni heima fyrir.

„Varnarlega höfum við staðið okkur mjög vel, og í byrjun var erfitt að skora mörk, en það er miklu betra núna. Það hefur bara gengið mjög vel undanfarið, og vonandi höldum við því áfram," sagði Kaj.

Stjörnumenn skiptu um þjálfara fyrir um mánuði síðan, en það er maður sem Kaj þekkir vel. 

„Ég var með honum upp á Skaga, en hann er frábær þjálfari. Við vitum líka að nýir þjálfara geta haft mikil og góð áhrif. Þannig við vitum að þetta getur orðið erifður leikur, og þeir munu koma með miklum krafti, og mæta 100% til leiks. Það er þá bara verkefni fyrir okkur að mæta í þennan leik tilbúnir, og klárir í slaginn," sagði Kaj.

Kaj var kominn inn í það að klippa hár þar sem hann naut mikilla vinsælda áður en hann flutti aftur til Færeyja, en fastakúnnarnir hafa ekki náð að lokka hann aftur til landsins.

„Ég var með mjög góðan hóp af strákum sem voru að mæta hjá mér, og þeir eru nokkrir búnir að senda á mig og biðja mig um að koma aftur að klippa. Mér líður bara mjög vel í Færeyjum núna, fjölskyldunni líður vel, þannig að það verður ekki núna. Ég verð í Færeyjum í nokkur ár allavega," sagði Kaj, en hann sagði einnig að hann hafi ekki náð að nýta þessa ferð í að klippa nokkra góða.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.