Fotbolti.net
08.07.26 - 23:31
Ívan Guðjón Baldursson

Ná samkomulagi um kaupverð fyrir Andrey Santos

Ná samkomulagi um kaupverð fyrir Andrey Santos
Canon

Mynd: EPA

Sky Sports greinir frá því að Chelsea sé búið að samþykkja kauptilboð frá Manchester United fyrir brasilíska miðjumanninn Andrey Santos.
Man Utd borgar 50 milljónir punda til að kaupa Santos, sem er 22 ára gamall og gekk til liðs við Chelsea fyrir þremur og hálfu ári síðan. Á þeim tíma kostaði Santos, sem á í dag sex A-landsleiki að baki fyrir Brasilíu, um 15 til 20 milljónir punda.

Chelsea heldur 10% af endursölurétti leikmannsins, sem mun skrifa undir samning eftir að hann stenst læknisskoðun hjá Rauðu djöflunum.

Santos telur sig ekki fá nægan spiltíma hjá Chelsea og vill því reyna fyrir sér hjá nýju félagi. Hjá Man Utd mun hann berjast við Kobbie Mainoo og Bruno Fernandes um sæti á miðjunni.

Santos færist nær Man Utd - Chelsea vill 50 milljónir
TENGT EFNI

Santos færist nær Man Utd - Chelsea vill 50 milljónir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.