08.08.05 - 06:44
Magnús Már Einarsson
Corradi lánaður til Parma (Staðfest)

Corradi (númer 9) fagnar marki gegn Deportivo La Coruna ásamt félögum sínum.


Corradi (númer 9) fagnar marki gegn Deportivo La Coruna ásamt félögum sínum.

Parma hefur fengið ítalska framherjann Bernardo Corradi að láni frá Valencia út komandi tímabil. Corradi sem er 29 ára kom til Valencia frá Lazio síðastliðið sumar en honum gekk illa á Spáni og skoraði aðeins 3 mörk í 21 leik í La Liga.
Corradi hefur verið orðaður við lið eins og Charlton í sumar enda var nokkuð ljóst að hann yrði ekki hjá Valencia á komandi tímabili eftir komu Patrick Kluivert og David Villa til liðsins.
Corradi er ætlað að reyna að fylla skarðið sem Alberto Gilardino skyldi eftir sig er hann fór til AC Milan í sumar.
Corradi er ætlað að reyna að fylla skarðið sem Alberto Gilardino skyldi eftir sig er hann fór til AC Milan í sumar.
