Fotbolti.net
08.08.05 - 10:58
Magnús Már Einarsson

Myhre til Charlton (Staðfest)

Dean Kiley markvörður Charlton missir af byrjun tímabilsins.

Dean Kiley markvörður Charlton missir af byrjun tímabilsins.

Canon
Norski markvörðurinn Thomas Myhre hefur gert eins árs samning við Charlton.
Dean Kiley aðalmarkvörður liðsins missir líklega af fyrstu sex vikum tímabilsins vegna meiðsla og mun Stephan Andersen taka stöðu hans í markinu. Alan Curbishley stjóri Charlton hefur hinsvegar ákveðið að semja við hnn 31 árs gamla Myhre til að vera til taks.

Myhre hefur verið að spila með norska liðinu Fredrikstad á samningi frá leik til leiks eftir að hann yfirgaf Sunderland í sumar. Myhre náði ekki samkomulagi við Sunderland varðandi nýjan samning en Charlton og Sunderland mætast einmitt í 1.umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.