08.08.05 - 11:42
Magnús Már Einarsson
Kleberson til Besiktas (Staðfest)

Kleberson kominn til Besiktas.

Kleberson kominn til Besiktas.

Besiktas hefur keypt brasilíska miðjumanninn Kleberson frá Manchester United á 2,5 milljónir punda. Þessi 26 ára Brasilíumaður hefur gert þriggja ára samning við Besiktas með möguleika á framlengingu um eitt ár.
Kleberson sem kom til Manchester United á 6,5 milljónir punda náði sér aldrei á strik með félaginu og lék aðeins 28 leiki með því en hann átti reyndar í þónokkrum meiðslavandræðum.
Kleberson sagði við komu sína til Besiktas: ,,Ég kem frá einu stóru félagi til annars stórs félags svo ég er mjög ánægður. Ég er mjög ánægður með að vera hér. Ég átti í engum vandræðum með að taka tilboðinu en konan mín þurfti að sannfærast. Hún samþykkti að koma til Istanbul og skoða sig um í síðustu viku og eftir það var hún viss."
Kleberson talaði við landa sinn Ailton sem kom til Besiktas frá Schalke fyrir skömmu. Kleberson bætti við: ,,Ég hef aldrei fengið svona glæsilegar móttökur. Fyrsta markmið mitt er að sanna hæfileika mína fyrir þjálfaranum, komast í liðið og vera gagnlegur fyrir liðið. Ailton sagði okkur góða hluti um Besiktas og Istanbul, það er frábært að vera hér."