Fotbolti.net
08.08.06 - 17:41
Hafliði Breiðfjörð

Djimi Traore og Amdy Faye til Charlton (Staðfest)

Traore er kominn til Charlton.

Traore er kominn til Charlton.

Canon

Mynd: Getty Images

Amdy Faye miðvallarleikmaður Newcastle United og Djimi Traore varnarmaður Liverpool gengu í dag í raðir Charlton Athletic en eins og við sögðum frá í gær voru þeir þá í læknisskoðun hjá félaginu.
Þeir komust báðir klakklaust í gegnum læknisskoðunina og komust í kjölfarið að samkomulagi við félagið um kaup og kjör. Þeir gera báðir þriggja ára samning við félagið.

Traore sem var í sjö ár hjá Liverpool getur spilað jafnt sem miðvörður eða vinstri bakvörður og því ljóst að hann mun veita Hermanni Hreiðarssyni samkeppni í vörninni.

Faye var í átján mánuði hjá Newcastle en náði ekki að vinna sér fast sæti í liðinu. Auk þeirra tveggja eru þeir Jimmy Floyd Hasselbaink og Simon Walton komnir til Charlton.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.