08.08.06 - 17:41
Magnús Már Einarsson
Sol Campbell til Portsmouth (Staðfest)

Campbell fagnar síðasta marki sínu fyrir Arsenal, gegn Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í vor.

Mynd: Getty Images

Portsmotuh hefur gert tveggja ára samning við varnarmanninn Sol Campbell en hann kemur til liðsins eftir að hafa yfirgefið Arsenal í síðasta mánuði þar sem hann vildi skipta um umhverfi og fá nýja áskorun.
Campbell fór í læknisskoðun hjá Portsmotuh í gær og þessi 31 árs gamli miðvörður hefur nú gengið til liðs við félagið eftir fimm ára dvöl hjá Arsenal. Newcastle sýndi einnig áhuga á leikmanninnum en Manchester City hefur neitað þeim orðrómi að liðið hafi reynt að fá kappann sem lék 197 leiki fyrir Arsenal eftir að hann kom frá grönnunum í Tottenham árið 2001.
Harry Redknapp stjóri Portsmouth mun væntanlega kaupa annan varnarmann til að hafa við hlið Campbell í vörninni og líklegast er að Sylvain Distin komi frá Manchester City eða Ryan Nelsen frá Blackburn Rovers.
Campbell átti í vandræðum á síðasta tímabili og óskaði eftir því að fá að yfirgefa Arsenal í sumar. Campbell lýsti því yfir að honum langaði að ganga til liðs við lið utan Englands en sú ákvörðun hans að fara til Portsmouth vakti athygli Arsene Wenger stjóra Arsenal. ,,Ég sé ekki eftir neinu, en það kom mér verulega á óvart því hann rifti samningi sínum til að fara erlendis. Er búið að selja Portsmouth í annað land? Nei," sagði Wenger.