Fotbolti.net
08.08.07 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Haukur Örn til Willem II (Staðfest)

Haukur í búningi Willem II.

Haukur í búningi Willem II.

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Haukur Örn Harðarson 16 ára varnarmaður úr Njarðvík hefur gert eins árs samning við hollenska félagið Willem II og heldur hann utan í fyrramálið.
Hann fór til reynslu hjá Willem II í maí og lék meðal annars með liðinu gegn PSV Eindhoven og Ajax. Forráðamenn Willum II hrifust af Hauki og vildu í kjölfarið semja við hann.

,,Mér líst mjög vel á þetta, ég er náttúrulega mjög ánægður með þetta tækifæri, mikil reynsla. Markmiðið er bara að standa sig vel og vonandi á komandi árum að fikra sig nær aðalliðinu. Þetta er ekkert rosalega stór klúbbur, einn af eldri klúbbunum í Hollandi, með mjög flotta akademíu og gott unglingastarf," sagði Haukur við Fótbolta.net í dag.

Haukur Örn hefur leikið með þriðja og öðrum flokki hjá Njarðvík en hann er nýkominn heim frá Danmörku þar sem hann lék með U-17 ára landsliði Íslendinga á Norðurlandamótinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.