Fotbolti.net
08.08.07 - 20:52
Sindri Þór Þorgeirsson

Diawara til Bordeaux (Staðfest)

Diawara er hér í leik með Sochaux, hann er nú kominn aftur í frönsku deildina

Diawara er hér í leik með Sochaux, hann er nú kominn aftur í frönsku deildina

Canon

Mynd: Getty Images

Franska liðið Bordeaux hefur líklega gert sín einu kaup í sumar þegar þeir keyptu senegalska landsliðsmanninn Souleymane Diawara í dag frá enska fyrstudeildarliðinu Charlton.
Eins og fram hefur komið mistókst Bordeaux að komast í meistaradeildina á síðasta tímabili og í kjölfar þess sagði eigandi liðsins að Laurent Blanc fengi aðeins pening til að kaupa einn leikmann í sumar.

Sá leikmaður er Souleymane Diawara sem þeir keyptu í dag frá Charlton og skrifaði hann undir fjögurra ára samning við félagið í dag. Diawara er 28 ára varnarmaður sem Charlton keyptu í fyrrasumar fyrir tæpar 3 milljónir punda.

Hann hefur reynslu af frönsku deildinni eftir að hafa leikið þar með Sochaux. Hann fékk ekki mikið að spila með Charlton en er samt ánægður með þá ákvörðun að fara þangað í fyrrasumar.

,,Ég vildi prufa deild í öðru landi og læra nýja hluti," sagði Diawara við komuna til liðsins í dag.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.