08.08.26 - 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mætti á eina æfingu og átti frábæran leik - „Markmannsstaðan er líka sprenghlægileg"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eva Ýr Helgadóttir var í markinu hjá Grindavík/Njarðvík þegar liðið vann magnaðan sigur á ÍBV í Bestu deild kvenna í gær. Genevieve Jae Crenshaw sem spilaði tíu leiki með liðinu í sumar er farin til Portúgals.
Eva Ýr spilaði með Víkingi í fyrra en byrjun þessa árs var hún fengin til Breiðabliks þegar markvarðavandræði komu upp fyrir Evrópuleikina gegn Häcken. Henni var þó ekki ætlað að byrja leikina og fékk á endanum ekki heimild til að vera í leikmannahópnum.

Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 4 - 2 ÍBV
Hún hafði aðeins mætt á eina æfingu hjá Grindavík/Njarðvík fyrir leikinn. Varnarmaðurinn Emma Nicole Phillips spilaði frammi í leiknum og skoraði fernu.
„Hún mætti á æfingu í september í fyrra og síðan ekki söguna meir. Talandi um einhverja sprenghlægilegar leikstöður þá er markmannsstaðan líka sprenghlægileg. Þetta er meira og minna búið að vera sprenghlægilegt tímabil," sagði Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
„Hún mætir og það er ekki að sjá að hún hafi ekki æft fótbolta síðan í september í fyrra. Greip inn í allt, ég vissi ekkert hvað ég var að fara sjá. Ég er mjög ánægður með það sem ég sá. Ég er ótrúlega þakklátur henni fyrir að vera til í þetta. Koma hingað og bjarga okkur í dag."
Gylfi býst ekki við því að hún spili fleiri leiki.
„Ég mun örugglega ræða við hana og sjá hvernig henni líður. En ég held að hún sé búin. Við verðum kannski komnar með enn einn markmanninn inn í næsta leik til að halda áfram að kveikja aðeins í þessu," sagði Gylfi.