Fotbolti.net
08.09.05 - 18:28

Philippe Christanval til Fulham (Staðfest)

Philippe Christanval til Fulham (Staðfest)
Canon
Fulham hafa fengið franska varnarmanninn Philippe Christanval til sín í frjálsri sölu. Christanval fékk samning sinn ekki endurnýjaðan hjá Marseille í sumar en hann lék áður með Monaco og stórliði Barcelona þar sem hann náði sér aldrei á strik.
Christanval er 27 ára gamall og var til reynslu hjá Arsenal og Celtic en þeim leist ekki nægjanlega vel á hann til að bjóða honum samning. Chris Coleman stjóri Fulham hikaði aftur á móti ekki við að skella þriggja ára samning á borðið eftir reynsluæfingar undanfarna viku.

,,Ég er ánægður með að fá nýjan leikmann til liðsins sem gefur okkur aukna breidd sem mér finnst við hafa skort" sagði Coleman í dag en Cristinval hefur spilað sex landsleiki fyrir Frakklands hönd. Hann var einnig í Monaco liðinu sem varð Frakklandsmeistari árið 2000.

,,Ég er í skýjunum yfir því að koma til Fulham og fá að spila í Úrvalsdeildinni þar sem hátt tempó er á hverjum einasta leik" sagði Christanval. ,,Það er mjög gott andrúmsloft á æfingavellinum og ég hlakka til að vinna með öllum leikmönnunum og vera hluti af Fulham liðinu."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.