Fotbolti.net
08.09.06 - 12:52
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Darren Anderton til Bournemouth (Staðfest)

Darren Anderton í leik með Birmingham

Darren Anderton í leik með Birmingham

Canon

Mynd: Getty Images

Fyrrum enski landsliðsmaðurinn Darren Anderton hefur gengið til liðs við Bournemouth á samningi þar sem hann fær borgað eftir því hversu marga leiki hann spilar
Þessi 34 ára gamli leikmaður mun endanlega skrifa undir samninginn á vellinum þegar Bournemouth tekur á móti Crewe á morgun.

Anderton hefur verið án félags í allt sumar eftir að hann fór frá Wolves í sumar og þess vegna má hann fara í nýtt félag eftir að félagsskiptaglugginn lokaði.

,,Bounemouth spila góðan bolta og mér finnst ég ekki of stór til að spila á þessu stigi," sagði Anderton við Daily Echo.

Anderton spilaði á sínum tíma 30 landsleiki fyrir Englands og þá spilaði hann yfir 400 deildarleiki fyrir Portsmouth, Tottenham, Birmingham og Wolves.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.