Newcastle á eftir Scalvini - Barcelona snýr sér aftur að Díaz - Tottenham vill belgískan miðvörð
   þri 08. september 2020 19:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu glæsilegt mark Hólmberts gegn Belgíu
Icelandair
Hólmbert Aron Friðjónsson kom Íslandi 1-0 yfir gegn Belgíu í Þjóðadeildinni með glæsilegu marki.

Stuttu áður hafði sóknarmaðurinn fengið dauðafæri eftir frábæra fyrirgjöf Birkis Bjarnasonar, en hann skallaði þá yfir. Hann bætti upp fyrir það með stórkostlegu marki á tíundu mínútu.

„HÓLMBERT MEÐ SKOT RÉTT FYRIR UTAN VÍTATEIGSBOGANN, boltinn hafði viðkomu í Denayer og skaust upp, fór svo í slána, stöngina og inn!" skrifaði Elvar Geir Magnússon í beinni textalýsingu.

Belgarnir svöruðu markinu strax, jöfnuðu og eru núna komnir 2-1 yfir.

Sjáðu mark Hólmberts hér að neðan.


Athugasemdir