Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 08. september 2020 15:38
Magnús Már Einarsson
Tomori á leið til Everton?
Mynd: Getty Images
ESPN segir að Everton sé nálægt því að fá varnarmanninn Fikayo Tomori á láni frá Chelsea.

Hinn 22 ára gamli Tomori er kominn neðar í röðina hjá Chelsea eftir að félagið fékk Thiago Silva frá PSG.

Hjá Everton mun hann berjast við Michael Keane, Mason Holgate og Yerry Mina um stöðu í hjarta varnarinnar.

Everton er einnig með varnarmanninn unga Jarrad Branthwaite en hann stóð sig vel undir lok síðasta tímabils.

Holgate og Mina eiga meiðslasögu að baki og því vill Carlo Ancelotti, stjóri liðsins, hafa nóg af miðvörðum innan sinna raða.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner