Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 08. september 2021 19:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fengu blómvönd og sérmerkta húfu fyrir 100 landsleiki
Icelandair
Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nafnarnir Birkir Már Sævarsson og Birkir Bjarnason eru þessa stundina að spila sinn 101. landsleik fyrir Íslands hönd - báðir tveir.

Þeir hafa báðir byrjað alla þrjá leikina í núverandi verkefni og eru þeir annar og þriðji meðlimur 100 leikja klúbbsins hjá A-landsliði karla.

Þeir voru heiðraðir fyrir leikinn gegn Þýskalandi, sem er núna í gangi. Þeir fengu afhentan blómvönd og sérmerkta húfu frá Knattspyrnusambandinu.

Þeim báðum vantar aðeins þrjá leiki í að jafna leikjamet Rúnars Kristinssonar fyrir íslenska landsliðið. Hann spilaði 104 A-landsleiki á sínum tíma.

Annars ber þess að geta að Þýskaland er 2-0 yfir í hálfleik gegn Íslandi.



Athugasemdir
banner
banner