Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 08. september 2022 09:00
Aksentije Milisic
Ten Hag: Ronaldo er tilbúinn í að byrja leiki
Ronaldo og Bruno á góðri stundu.
Ronaldo og Bruno á góðri stundu.
Mynd: EPA

Manchester United mætir Real Sociedad í Evrópudeildinni í kvöld en þetta gæti orðið fyrsti leikurinn hjá Cristiano í þessari deild.

Hann spilaði hins vegar tvo leiki árið 2002 fyrir Sporting gegn Partizan Belgrade en þá hét keppnin UEFA Cup.


Erik ten Hag var spurður út í Ronaldo eins og svo oft áður, á blaðamannafundi fyrir leikinn en Ronaldo hefur verið að koma inn á sem varamaður í síðustu leikjum.

Hann hefur byrjað einn leik á þessari leiktíð en það var í tapinu stóra gegn Brentford í annari umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

„Hann byrjaði inn á gegn Brentford, en ekki síðan. Hann er tilbúinn að byrja leiki, auðvitað getur hann byrjað inn á í flestum leikjum," sagði Hollendingurinn.

United hefur unnið fjóra leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni og hefur Ronaldo komið inn á sem varamaður í þeim öllum.


Athugasemdir
banner
banner