Fotbolti.net
08.10.06 - 20:50

Óli Halldór Sigurjónsson tekur við Leikni í Breiðholti (Staðfest)

Óli er hér lengst til vinstri á myndinni sem tekin er þegar hann var aðstoðarþjálfari Leiknis 2004. Með honum á myndinni eru liðsstjórinn Ásgeir Ásgeirsson og varnarmaðurinn Halldór Kristinn Halldórsson.

Óli er hér lengst til vinstri á myndinni sem tekin er þegar hann var aðstoðarþjálfari Leiknis 2004. Með honum á myndinni eru liðsstjórinn Ásgeir Ásgeirsson og varnarmaðurinn Halldór Kristinn Halldórsson.

Canon

Mynd: Leiknir.com - Matthías Ægisson

Leiknir í Breiðholti hefur ráðið nýjan þjálfara fyrir meistaraflokk félagsins. Hinn nýji þjálfari heitir Óli Halldór Sigurjónsson og tekur hann við af Garðari Gunnari Ásgeirssyni sem lét af störfum með Leikni eftir sumarið. Þetta kemur fram á heimasíðu Leiknis nú í kvöld.
Óli Halldór er 33 ára og hefur verið viðriðinn Leikni síðustu ár þar sem
hann hefur m.a. þjálfað 2. flokk félagsins. Árið 2004 var hann aðstoðarmaður Garðars hjá meistaraflokki.

Í fyrra stýrði hann Neista á Djúpavogi í 3. deildinni en snéri síðan aftur í Breiðholtið í ár og sá um þjálfun 2. og 3. flokks Leiknis í sumar. Sem leikmaður hóf hann feril sinn hjá ÍR en lék einnig í búningi Leiknis og Léttis.

Leiknir hafnaði í 9. sæti í 1. deildinni í sumar en félagið hefur verið í mikilli leit að nýjum þjálfara frá því tímabilinu lauk. Fram kemur á heimasíðu Leiknis að rætt hafi verið við nokkra þjálfara sem voru á lausu en á endanum var ákveðið að fylgja stefnu félagsins sem reynir að byggja félagsstarfið upp á mönnum sem aldir eru upp hjá félaginu eða hafa verið viðriðnir það lengi.

Heimild: Leiknir.com

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.