08.10.26 - 14:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eigum að vinna Króatíu - „Síðast bara hent inn einhvern veginn“
Skrifar frá Rovinj í Króatíu
Auglýsing

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Frá æfingu Íslands í dag.

Ísland mætir Króatíu á morgun.

„Það eru allar heilar og allt klárt," sagði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari Íslands, þegar hann ræddi við Fótbolta.net fyrir æfingu Íslands í dag. Um var að ræða lokaæfinguna fyrir fyrri leikinn gegn Króatíu í umspilinu fyrir HM.
„Þetta lítur bara vel út, æfingar hafa gengið vel og við erum jákvæð."
Steini þurfti að gera nokkrar breytingar á hópnum út af meiðslum leikmanna og þá á Ingibjörg Sigurðardóttir von á barni. Hann er ánægður með þá leikmenn sem hafa komið inn, en þar á meðal eru nýliðarnir Emelía Óskarsdóttir og Líf Joostdóttir van Bemmel.
„Mér líst vel á það hvernig þær hafa komið inn í þetta og þær sýna okkur að þær eru klárar í að taka þátt í þessu."
Ísland á að vera betra lið en Króatía. „Fyrirfram eigum við að klára þetta og við gerum okkur alveg grein fyrir því. En við þurfum alltaf að spila leikinn vel og við þurfum að spila af virðingu fyrir þær. Sú virðing snýst um að leggja sig öll í þetta og gera sitt allra besta inn á vellinum."
Umspilið hefur breyst
Síðast komst Ísland líka í umspil um að komast á HM en þá var það bara einn úrslitaleikur þar sem dregið var um hvort liðið ætti heimaleik. Ísland tapaði þá gegn Portúgal á útivelli.
„Þetta er orðið eðlilegra. Síðast fannst manni þessu bara hent inn einhvern veginn - þeir vissu ekki alveg hvernig þeir ættu að koma þessu í gegn og bjuggu til einhverja leið sem var sérstök. Það er bara búið og núna er það bara þetta."
„Núna er það okkar að klára þetta verkefni á móti Króatíu. Allur okkar fókus er á þetta verkefni og þessa leiki. Við þurfum að horfa í að þeir verða að vera góðir til að við tökum fyrsta skrefið sem okkur dreymir um að fara."
Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.