Fotbolti.net
30.10.26 - 21:26
Ívan Guðjón Baldursson

Þýskaland: Cole Campbell með glæsilegt mark

Þýskaland: Cole Campbell með glæsilegt mark
Canon

Mynd: EPA

Elversberg 4 - 1 Mainz
1-0 Felix Keidel ('7 )
2-0 Francis Onyeka ('26 )
3-0 Maurice Krattenmacher ('45+1)
4-0 Cole Campbell ('91)
4-1 Benedict Hollerbach ('92 )
Rautt spjald: Stefan Posch, Mainz ('95)
Cole Campbell byrjaði á bekknum er Elversberg tók á móti Mainz í fyrsta leik helgarinnar í efstu deild þýska boltans.

Nýliðar Elversberg byrjuðu af miklum krafti og leiddu 3-0 í leikhlé eftir mörk frá Felix Keidel, Francis Onyeka og Maurice Krattenmacher.

Keidel skoraði laglegt mark beint úr aukaspyrnu áður en Onyeka tvöfaldaði forystuna. Krattenmacher skoraði þriðja markið í kjölfar hornspyrnu sem Mainz mistókst að hreinsa frá marki.

Cole kom inn af bekknum á 77. mínútu og lét til sín taka í uppbótartíma þegar hann setti fjórða og síðasta mark heimamanna eftir frábært framtak. Hann fann sér góða stöðu í vítateignum eftir laglegt samspil við tvo liðsfélaga og fékk boltann til sín í erfiðri hæð, snúandi baki í markið.

Cole gerði mjög vel að taka á móti boltanum með bringunni áður en hann skoraði með glæsilegri klippu. Mínútu síðar minnkuðu gestirnir muninn niður í 4-1 og urðu það lokatölurnar.

Elversberg var sterkara liðið í dag og nýtti færin sín til hins ítrasta. Liðið er afar óvænt í 5. sæti í Bundesliga með 13 stig eftir 8 umferðir og situr Mainz eftir með 10 stig eftir fína byrjun á tímabilinu.
Þýskaland: Cole Campbell með glæsilegt mark
Canon

Mynd: EPA

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern7+1917
2Dortmund7+817
3Freiburg7+713
4Leverkusen7+413
5Elversberg8013
6RB Leipzig7+912
7Werder7+112
8Mainz8010
9Augsburg7+49
10Hoffenheim709
11Hamburger7-109
12Köln7-38
13Paderborn7-38
14Frankfurt7-78
15Stuttgart7-36
16Schalke 047-36
17Union Berlin7-126
18Gladbach7-113
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.