30.10.26 - 20:32
Ívan Guðjón Baldursson
Ísak lagði upp dýrmætt sigurmark

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Álaborg

Mynd: Viking

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Nokkrir Íslendingar hafa komið við sögu í leikjum dagsins þar sem Ísak Snær Þorvaldsson lék mikilvægt hlutverk í sigri Lyngby gegn Randers í efstu deild í Danmörku.
Ísak Snær var í byrjunarliðinu ásamt hinum 19 ára Davíð Smára Aronssyni og kom Daníel Freyr Kristjánsson inn af bekknum undir lokin.
Ísak lagði sigurmark leiksins upp á 69. mínútu fyrir hinn bandaríska Markus Anderson sem var nýlega kominn inn af bekknum. Lokatölur 2-1 og er Lyngby 11 stig eftir 13 umferðir.
Þetta var aðeins annar sigur Lyngby á deildartímabilinu og situr liðið í næstneðsta sæti deildarinnar.
Í næstefstu deild lék Nóel Atli Arnórsson fyrri hálfleikinn í jafntefli hjá Álaborg gegn Hobro. AaB er um miðja deild, með 15 stig eftir 13 umferðir.
Amin Cosic fékk þá að spila síðustu sekúndurnar í tapi Viking í toppslagnum gegn Bodö/Glimt í efstu deild í Noregi.
Bodö/Glimt vann 3-2 og eru liðin jöfn á stigum í titilbaráttunni, með 59 stig eftir 25 umferðir. Spennan er því gríðarlega mikil þegar fimm umferðir eru eftir.
Ef stórveldin enda jöfn á toppi deildarinnar er það markatalan sem gildir, en eins og staðan er í dag þá er markatalan jöfn.
Því næst er litið til skoraðra marka og þar hefur Viking vinninginn sem stendur - með 64 mörk skoruð gegn 61 marki hjá Glimt.
Ef liðin enda með eins markatölu þá verður litið til innbyrðisviðureigna, og þar hafa Amin og félagar í liði Viking vinninginn eftir að hafa unnið fyrri leikinn 5-0 á heimavelli.
Að lokum var Aron Einar Gunnarsson ekki í hóp vegna meiðsla er liðsfélagar hans í Qatar SC töpuðu fyrir gömlu vinnuveitendum Arons í liði Al-Gharafa. Lokatölur 2-0.
Qatar SC er í næstneðsta sæti katörsku deildarinnar með 6 stig eftir 8 umferðir.
Lyngby 2 - 1 Randers
Aalborg 1 - 1 Hobro
Bodö/Glimt 3 - 2 Viking
Al-Gharafa 2 - 0 Qatar SC