30.10.26 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Skipti til City til að hefna sín á Sir Alex

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Argentínumaðurinn Carlos Tévez, sem lék meðal annars fyrir Manchester United og Manchester City á frábærum ferli, viðurkennir að hann skipti á sínum tíma yfir til Man City til að hefna sín á Sir Alex Ferguson og Man Utd.

TENGT EFNI
Carlos Tévez leitar að nýju félagi
Tévez var samningsbundinn West Ham en lék á láni hjá Man Utd í tvö ár. Hann lykilmaður fyrra árið hjá Rauðu djöflunum en sinnti ekki jafn mikilvægu hlutverki á seinna tímabilinu, eftir komu Dimitar Berbatov til félagsins sumarið 2008.
„Mér líður eins og ég hafi lagt mig allan fram fyrir bæði Manchester-liðin á tíma mínum þar. Ég naut mín í botn hjá United en að ganga til liðs við City var eins og hefnd fyrir mig. Mér leið eins og United hafi ekki gefið mér til baka það sem ég gaf félaginu og þess vegna valdi ég City," sagði Tévez á YouTube rás fyrrum liðsfélaga síns Rio Ferdinand.
Tévez er sár að Man Utd hafi ekki viljað kaupa sig úr röðum West Ham. United borgaði rúmlega 30 milljónir punda til að kaupa Berbatov, á meðan West Ham vildi tæpar 50 milljónir fyrir Tévez sem Rauðu djöflunum þótti vera alltof mikið. Stuðningsmenn United vildu sjá félagið kaupa Tévez en fengu ósk sína ekki uppfyllta.
City keypti Tévez að lokum fyrir 47 milljónir, sem var metfé í ensku úrvalsdeildinni á þeim tíma. Hann reyndist ómissandi lykilmaður og skoraði 73 mörk í 148 leikjum á dvöl sinni hjá City.
„Fergie sagði við mig að félagið ætlaði að kaupa mig. Hann sagði við mig á fyrsta árinu að hann myndi kaupa mig ef ég stæði mig vel og hann endurtók það svo um sumarið, en það varð aldrei neitt úr því loforði. Hann sagði að félagið ætlaði að kaupa mig þrátt fyrir kaupin á Berbatov, en það reyndist rangt.
„Þetta var mjög erfitt fyrir mig út af því að ég gaf hjartað mitt til United og leið ekki eins og það væri endurgoldið. Við unnum Meistaradeildina og úrvalsdeildina en félagið keypti svo annan sóknarmann og sleppti því að kaupa mig. Mér leið ekki vel með það. Ferguson stóð ekki við loforðið sitt og byrjaði að geyma mig oftar og oftar á bekknum.
„Ég tók þessu persónulega og þetta særði mig mikið. Mér leið eins og Ferguson væri að setja mig á bekkinn til að reyna að lækka kaupverðið sem Man Utd þurfti að borga fyrir mig."