Fotbolti.net
30.10.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Maddison með Spurs á morgun

James Maddison.

James Maddison.

Canon

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, segir að miðjumaðurinn James Maddison sé klár í slaginn fyrir leikinn gegn Crystal Palace sem fram fer á morgun klukkan 17:30.

Maddison haltraði af velli á 51. mínútu í 2-0 sigri Tottenham á Chelsea um síðustu helgi. Einhverjir stuðningsmenn urðu áhyggjufullir enda missti Maddison af stærstum hluta síðasta tímabils vegna krossbandameiðsla.
England um helgina - Man Utd á Brúnni og Arsenal á Anfield
TENGT EFNI

England um helgina - Man Utd á Brúnni og Arsenal á Anfield

Maddison braut síðan öxl í tapi Tottenham gegn Brentford í fyrstu umferð áður en hann sneri aftur í byrjunarliðið fyrr í þessum mánuði þegar hann skoraði stórkostlegt mark í 3-1 sigri gegn Coventry.

Þegar De Zerbi var á fréttamannafundi í dag spurður út í ástand Maddison sagði hann að hann yrði klár fyrir heimsókn Palace.

Tottenham er í 14. sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa klifrað upp úr fallsætinu. Maddison, sem er 29 ára, hefur skorað 17 mörk og lagt upp 21 í 85 leikjum fyrir Lundúnafélagið.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.