30.10.26 - 15:35
Elvar Geir Magnússon
Ákvörðun dregin til baka og Afríkukeppnin verður á tveggja ára fresti

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Afríkukeppnin í fótbolta (Afcon) verður haldin áfram á tveggja ára fresti eftir að ákvörðun um að hafa hana með fjögurra ára millibili var tekin til baka.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu fótboltasambandsins en stærsta ástæðan er fjárhagsleg eðlis.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu fótboltasambandsins en stærsta ástæðan er fjárhagsleg eðlis.
Félagslið í Evrópu höfðu fagnað því að Afríkukeppnin átti að verða á fjögurra ára fresti enda er mótið haldið um vetrartímann og mörg lið missa leikmenn frá sér á mikilvægum tímapunkti á tímabilinu.
Kenía, Tansanía og Úganda verða gestgjafar á næsta ári og afríska sambandið hefur gefið út að þrjú næstu mót eigi að fara fram árin 2028, 2031 og 2033. Næsta heimsmeistaramót fer fram árið 2030 og útskýrir þriggja ára bilið sem myndast.