Fotbolti.net
30.10.26 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rúnar Páll boðar niðurskurð á leikmannahópi Stjörnunnar

Þeim finnst svo gaman að vera í golfhermum

Rúnar Páll boðar niðurskurð á leikmannahópi Stjörnunnar
Canon

Mynd: Kári Snorrason

Rúnar Páll Sigmundsson var ráðinn til Stjörnunnar fyrr í þessum mánuði og í síðustu viku var hann til viðtals í ChessAfterDark.

Þar boðaði hann niðurskurð á leikmannahópi liðsins. Rúnar sagðist vilja vinna með 14-15 fullorðnum leikmönnum
„Ég ætla ekki að dæma hópinn út frá árinu í ár. Módelið mitt er að vera með öfluga 12-15 gaura og svo öfluga 2. flokks gaura sem fá tækifæri á mínútum," sagði Rúnar Páll í viðtalinu.

Hjá Stjörnunni eru 22 leikmenn*, sem eru komnir upp úr 2. flokki, á samningi. Það gefur því auga leið að Rúnar vill skera vel niður í hópnum. Þá eru þeir Andri Rúnar Bjarnason og Sindri Þór Ingimarsson með lausa samninga og Bergvin Fannar Helgason er sterklega orðaður við félagið.

*Eftir að Fótbolti.net tók saman samningsstöðu leikmanna Stjörnunnar fékk félagið til sín Guðmund Rafn Ingason frá Gróttu.

Rembingur að æfa á morgnana
Rúnar sagði í sama viðtali að hann muni áfram starfa sem kennari með fram þjálfuninni og meistaraflokkur Stjörnunnar myndi æfa seinni partinn.

„Þetta fer mjög vel saman (kennsla og þjálfun). Mörg lið eru að æfa á morgnana," segir Rúnar Páll og þáttarstjórnandinn Birkir Karl skaut þá inn í að flestir ef ekki allir þjálfarar í Bestu deildinni væru í fullu starfi. „Þeim finnst svo gaman að vera í golfhermum eða í golfi á sumrin. Það er fínt að gera það eftir hádegi, ég nenni því ekki, er ekki kominn þangað," sagði Rúnar á léttu nótunum. „Það er mismunandi hvernig fólk hefur það. Mér finnst við ekki komin á þann stað á Íslandi að geta verið að æfa á morgnana. Það er ekki verið að borga það há laun að menn geti verið í atvinnumennsku á Íslandi. Þetta hefur áhrif á vinnuna þína, áhrif á skólann, verður togstreita hjá leikmönnum og ég held að félögin átti sig ekki á því. Ég held það sé rembingur að æfa fyrr á daginn."

Finnst að Stjarnan eigi alltaf að vera í topp þremur
Rúnar Páll var líka spurður út í markmiðasetningu.

„Það er ekki nóg að setja bara eitthvað niður á blað, það þarf að fylgja því einhver ábyrgð. Mér finnst að Stjarnan eigi alltaf að vera í topp þremur, félagið hefur allt til þess. Félagið og þeir sem spila hjá félaginu ættu að setja sér svoleiðis markmið. Við setjum okkur ekki markmið að vera í efri hlutanum, mér finnst það tilgangslaust. Það er mjög lélegt að vera ekki í efri hlutanum."

Rúnar Páll boðar niðurskurð á leikmannahópi Stjörnunnar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll boðar niðurskurð á leikmannahópi Stjörnunnar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.