30.10.26 - 17:40
Elvar Geir Magnússon
Fimm sem Man Utd gæti reynt við í janúar

Tyrick Mitchell.

Mynd: EPA

Rayan Ait-Nouri.

Mynd: EPA

Adrien Truffert.

Mynd: EPA

Tyrick Mitchell.

Mynd: EPA
Manchester United bíður óþreyjufullt eftir janúargluggan eftir hörmulega byrjun liðsins á tímabilinu. Liðið situr í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og staða Michael Carrick er í hættu.
Meiðsli hafa sett strik í reikninginn og gert leikmannahópinn berskjaldaðan. Félaginu tókst ekki að fá til sín vinstri bakvörð í sumar og skortur á breidd í sóknarlínunni er annað augljóst vandamál sem þarf að bregðast við.
Mirror skoðaði fimm leikmenn sem Manchester United gæti beint sjónum sínum að í janúarglugganum.

Tyrick Mitchell
Manchester United þarf vinstri bakvörð, Mitchell hefur öðlast mikla úrvalsdeildarreynslu með Crystal Palace og samningur hans rennur út næsta sumar. Þessi 27 ára leikmaður getur bæði spilað sem hefðbundinn bakvörður eða vængbakvörður.
Rayan Ait-Nouri
Alsíringurinn hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Manchester City síðan hann kom frá Wolves. City er sagt tilbúið að selja í janúar. Ait-Nouri er 25 ára og hefur sýnt að hann er öflugur sóknarsinnaður bakvörður.
Adrien Truffert
Það er líklega erfitt að fá Truffert sem er ánægður hjá Bournemouth, liði sem rúllaði yfir United um síðustu helgi. Þessi 24 ára leikmaður hefur verið lykilmaður hjá liðinu síðan hann kom frá Rennes á síðast ári. Hann er á blaði hjá mun fleiri félögum en Manchester United.
Dominic Calvert-Lewin
Benjamin Sesko verður frá fram í janúar og sú ákvörðun United að kaupa ekki sóknarmann síðasta sumar virðist kjánaleg. Calvert-Lewin hefur verið að skora fyrir Leeds og er orðaður við Manchester United. Það er harla ólíklegt að Leeds sé tilbúið að selja hann á miðju tímabili.
Jean-Philippe Mateta
Framtíð Mateta hjá Crystal Palace hefur verið í umræðunni allt þetta ár. Hann var á leið til AC Milan síðasta janúarglugga en féll á læknisskoðun. Samningur sóknarmannsins rennur út næsta sumar. Meiðslasaga þessa 29 ára leikmanns hringir þó ákveðnum viðvörunarbjöllum.

Heimild: Mirror

Rayan Ait-Nouri.

Mynd: EPA

Adrien Truffert.

Mynd: EPA

Dominic Calvert-Lewin.

Mynd: EPA

Jean-Philippe Mateta.

Mynd: EPA