30.10.26 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldo 2008 valinn sem besti sigurvegari Ballon d'Or

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Á hverju ári er besti fótboltamaður heims heiðraður með Ballon d'Or verðlaununum en margir hafa spurt sig hver sé sá besti í sögunni til að hafa hreppt þessi eftirsóttu verðlaun - BOAT verðlaunin.

TENGT EFNI
Ronaldo leiðir kosningu um besta Ballon d’Or-hafa sögunnar
Ballon d'Or hefur svarað því með kosningu lesenda France Football, sem telja frammistöðu Cristiano Ronaldo árið 2008 vera bestu frammistöðu leikmanns á einu keppnistímabili í sögu fótboltans.
Kosningin var haldin til að fagna 70 ára afmæli Ballon d'Or verðlaunanna og kostaði eina evru að greiða atkvæði í gegnum smáskilaboð í síma. Rétt rúmlega 5000 atkvæði voru greidd og endaði Ronaldo í 1., 3. og 5. sæti á meðan hans helsti keppinautur Lionel Messi átti tvö afburðagóð ár sem skiluðu honum 2. og 4. sæti í kjörinu.
Ronaldo tileinkaði fótboltaáhugamönnum um allan heim sigurinn. „Stuðningsmenn eiga fótboltann! Ég vil þakka áhorfendum um allan heim. Ballon d'Or allra tíma verðlaunin eru líka ykkar," sagði Ronaldo.
Fimm bestu sigurvegarar Ballon d'Or:
1. Cristiano Ronaldo 2008
2. Lionel Messi 2012
3. Cristiano Ronaldo 2017
4. Lionel Messi 2023
5. Cristiano Ronaldo 2016