08.10.26 - 14:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jóhann Berg leggur skóna á hilluna

Jóhann Berg Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á EM 2016.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Berg Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Berg Guðmundsson hefur tilkynnt að hann sé búinn að leggja skóna á hilluna.
„Eftir meira en 18 ára sem atvinnumaður er kominn tími á að ég leggi skóna á hilluna," skrifar Jóhann Berg í færslu á samfélagsmiðlum.

„Þvílík vegferð sem þetta hefur verið," skrifar Jói Berg og bætir við: „Fótbolti hefur gefið mér allt."
Jóhann Berg átti gríðarlega farsælan feril sem fótboltamaður. Ferillinn hófst hjá Breiðabliki og svo fór hann í akademíur Chelsea og Fulham. Hann fluttist aftur heim til Íslands 2008 og sló í gegn með Blikum.
Hann var seldur út til AZ Alkmaar í Hollandi og var þar í fimm ár. Fór svo til Charlton og Burnley á Englandi þar sem hann spilaði talsvert í ensku úrvalsdeildinni með síðarnefnda liðinu. Upp á síðkastið hefur hann leikið í Sádi-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Jóhann Berg var hluti af gullkynslóð Íslands og var lykilmaður í liðinu sem fór á EM 2016 og HM 2018. Alls spilaði hann 102 landsleiki og skoraði átta mörk.
„Að spila fyrir Ísland var minn stærsti heiður í lífinu. Að standa með bræðrum mínum á stærsta sviði heims, með allt Ísland á bak við okkur, er eitthvað sem ég mun bera með mér alla ævi."
Færslu Jóhanns má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.