Fotbolti.net
05.10.26 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson

Mbappé fór þvert gegn orðum Mourinho

Mbappé fór þvert gegn orðum Mourinho
Canon

Mynd: EPA

Það er vaxandi spenna á milli Kylian Mbappé og Real Madrid eftir að franska ofurstjarnan birti myndband af sér á hjóli samfélagsmiðlum.
Þetta gerir Mbappé aðeins tíu dögum eftir að José Mourinho sagði í viðtali að samningsbundnir leikmenn mættu ekki fara í skíðaferðir eða hjólreiðitúra til að setja eigin heilsu ekki í hættu.

Margir stuðningsmenn Real Madrid eru ekki sáttir með hegðun Mbappé sem er að glíma við meiðsli þessa dagana og kaus að fara í sérstaka endurhæfingu fjarri æfingabúðum félagsins í stað þess að nýta heimsklassa sjúkradeild Real Madrid. Stuðningsmenn spyrja sig hvort einhver geti haft hemil á Mbappé eða hvort leikmaðurinn ætli sér að verða stærri heldur en félagið, líkt og gerðist hjá Paris Saint-Germain.

Stuðningsmenn eru ósáttir að Mbappé fái að gera hvað sem hann vill þrátt fyrir að búa yfir mögnuðum fótboltahæfileikum, en hann hefur skorað 94 mörk og gefið 14 stoðsendingar í 111 leikjum með félaginu.

Mbappé var fenginn til Real Madrid eftir að liðið vann Meistaradeildina 2024, en stórveldinu hefur ekki tekist að hampa neinum stórum titli síðan þá þrátt fyrir mikla markaskorun Frakkans. Leikmennirnir sem spila í kringum Mbappé virðast ekki vera orðnir betri eftir félagaskipti hans til Madrídar.


Mbappé fór þvert gegn orðum Mourinho
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.