08.11.05 - 06:12
Hafliði Breiðfjörð
Hermann Geir til HK (Staðfest)

Mynd: Víkingur Ólafsvík

Mynd: Víkingur Ólafsvík
Fyrstu deildar félag HK heldur áfram að styrkja sig fyrir baráttuna í deildinni næsta sumar en í gærkvöld skrifaði Hermann Geir Þórsson undir tveggja ára samning við félagið, sem gildir út tímabilið 2007.
Hermann kemur til félagsins frá Víkingi Ólafsvík þar sem hann er uppalinn. Hann lék sextán leiki með Víkingi Ólafsvík í 1. deildinni í sumar og skoraði í þeim þrjú mörk auk tveggja marka í VISA bikarnum.
Hermann sem er 26 ára gamall en hann hætti hjá Víkingi Ólafsvík þar sem eiginkona hans hefur hafið nám í Háskólanum í Reykjavík og því flutti fjölskyldan í bæinn.
Hermann er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir HK frá því tímabilinu lauk en áður höfðu Jón Þorgrímur Stefánsson komið frá FH og Þórður Birgisson frá KS.

Heimild: HK.is