Fotbolti.net
08.11.26 - 12:14
Brynjar Ingi Erluson

„Eins og tíminn stæði í stað, líkt og í bíómynd“

Harry Kane

Harry Kane

Canon

Mynd: EPA

Ballon d'Or-verðlaunahafinn Harry Kane segist aldrei hafa getað ímyndað sér að hann myndi vinna verðlaunin, en eftir því sem leið á ferilinn fór hann að trúa því að það gæti orðið að veruleika.
Kane vann Ballon d'Or verðlaunin (Staðfest)
TENGT EFNI

Kane vann Ballon d'Or verðlaunin (Staðfest)

Kane var valinn besti fótboltamaður heims í lok október og varð þar með fyrsti Englendingurinn til að vinna Ballon d'Or síðan Michael Owen gerði það árið 2001.

Hann segir að augnablikið þegar nafn hans var lesið upp á verðlaunahátíðinni hafi verið svo yfirþyrmandi að honum hafi fundist tíminn standa í stað.

„Ég fór í gegnum allan tilfinningaskalann. Ég var ótrúlega stressaður og hafði aldrei fundið fyrir jafn mikilli pressu áður, jafnvel þótt ég hafi spilað ótal fótboltaleiki. Í þetta sinn var niðurstaðan nefnilega ekki í mínum höndum. Þegar ég gekk upp á sviðið fann ég fyrir gríðarlegum létti þótt hjartað hafi enn slegið mjög hratt. Ég fraus næstum því þegar ég heyrði nafnið mitt. Það var eins og tíminn stæði í stað, líkt og í bíómynd. Tilfinningin var ótrúlega góð,“ sagði Kane.

Eftir að hafa tekið við verðlaununum birti hann áhugaverð spakmæli á samfélagsmiðlum: „Leggðu hart að þér í hljóði og láttu árangurinn tala sínu máli.“

Kane var beðinn um að útskýra hvað þessi orð þýddu fyrir hann.

„Ég rakst á þessi spakmæli fyrir nokkrum árum, þegar ég var yngri. Mér finnst þau lýsa mér ágætlega sem manneskju og allri þeirri vinnu sem ég hef lagt á mig án þess að aðrir sjái hana. Þetta er vinnan á bak við tjöldin, þegar enginn er að horfa, hvort sem það eru meðferðir, ísböð eða aukaæfingar sem maður tekur sjálfur eftir að hefðbundinni æfingu lýkur.“

„Allir þessir litlu hlutir hjálpa manni að verða betri og þetta er í raun það sem ég hef hvað mest gaman af. Þegar ég lít til baka á vegferð mína, sérstaklega tímabilin þegar hlutirnir gengu ekki eins vel, þá er það einmitt þessi vinna sem gerir ferðalagið svo sérstakt.“

„Mér finnst þetta því mjög góð spakmæli og margir hafa sagt mér eftir Ballon d'Or-hátíðina að þeim hafi þótt mikið til þeirra koma. Það er notalegt að heyra að fólk geti tengt þessi orð við mína vegferð.“


Kane viðurkennir að framan af ferlinum hafi hann aldrei ímyndað sér að hann gæti einn daginn unnið Ballon d'Or, en eftir því sem árin liðu fór hann að trúa því að það væri möguleiki.

„Ef ég á að vera hreinskilinn þá er svarið nei. Í upphafi hafði ég enga trú á að þetta væri mögulegt, en eftir því sem leið á ferilinn fór ég að fylgjast meira með Ballon d'Or og hugsa með mér: Af hverju ekki?“

„Að vinna þessi verðlaun er eitthvað sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér. Ég vildi einfaldlega verða góður fótboltamaður og með tímanum hélt ég áfram að bæta leik minn. Eftir að ég kom til München hef ég tekið enn eitt skrefið fram á við og í dag er ég í besta formi lífs míns. Ég vonast til að geta haldið áfram að gefa mitt besta alveg fram á síðasta dag.“


Kane framlengdi á dögunum samning sinn við Bayern München og er hann nú samningsbundinn félaginu til ársins 2029.

„Ég er ótrúlega ánægður með að hafa framlengt samninginn. Eins og þið sjáið nýt ég þess mjög að vera hjá félaginu og það endurspeglast í því hvernig ég spila og hversu mikið ég skora. Það eru mikil forréttindi að vera eftirsóttur og ég ætla mér að vera hér til lengri tíma,“ sagði Kane.
„Eins og tíminn stæði í stað, líkt og í bíómynd“
Canon

Mynd: EPA

„Eins og tíminn stæði í stað, líkt og í bíómynd“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.