08.12.05 - 19:40
Hafliði Breiðfjörð
Arnar Gunnlaugsson í ÍA (Staðfest)

Eiríkur Guðmundsson og Arnar Gunlaugsson við undirskriftina í dag

Mynd: ÍA.is/KIA

Arnar Gunnlaugsson skrifaði í dag undir eins ár samning við uppeldisfélag sitt, ÍA og mun því leika með liðinu á næstu leiktíð. Þetta kom fram á vefsíuð félagsins nú í kvöld.
Koma Arnars til ÍA á ný er mikill styrkur fyrir félagið því hann er einn mesti markaskorari sem Skagamenn hafa átt frá upphafi. Í þeim 47 leikjum sem Arnar hefur spilað fyrir Skagamenn í efstu deild hefur hann skorað 35 mörk en auk þess skoraði hann 18 mörk fyrir Skagamenn þegar að liðið lék í næstefstu deild árið 1991.
Arnar lék síðast með Skagamönnum árið 1997 þegar hann kom heim úr atvinnumennskunni og skoraði 15 mörk fyrir Skagamenn í sjö leikjum áður en hann hélt aftur á ný í atvinnumennskuna þegar að hann samdi við enska liðið Bolton.
Önnur félög sem Arnar hefur spilað með:
Feyenoord (Hollandi), FC Nuremberg (Þýskalandi), Sochaux (Frakklandi, Bolton Wanderers, Leicester City og Stoke City (Englandi), Dundee United (Skotlandi) og KR
Við undirskirfina í dag sagðist Arnar hlakka alveg "hrikalega" mikið til að klæðast gulu treyjunni á ný og spila fyrir sitt gamla félag. Hann sagði að það væri bjartir tímar framundan hjá félaginu og vonandi ætti koma hans til þess á ný eftir að styrkja það enn frekar. Hann sagði að það hafi alltaf verið hugur hans að spila fyrir Skagamenn á ný og sá tími væri nú runninn upp.

Heimild: ÍA.is/KIA