Fotbolti.net
09.01.06 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Jökull Elísabetarson í Víking (Staðfest)

Jökull og Magnús Gylfason ganga frá samningum í gær.

Jökull og Magnús Gylfason ganga frá samningum í gær.

Canon

Mynd: Víkingur

Víkingar staðfestu í gærkvöld að Jökull Ingason Elísabetarson sé genginn í raðir félagsins frá KR. Fótbolti.net greindi frá þessu á laugardagskvöld en formlega var skrifað undir samning þessa efnis í gær. Magnús Gylfason þjálfari Víkinga sagði við Fótbolta.net að hann ætli að nota Jökul sem miðjumann hjá Víkingi.
,,Ég er mjög sáttur við að vera búinn að fá Jökul," sagði Magnús í samtali við Fótbolta.net í gær.

Hjá KR lék Jökull bæði sem bakvörður og á miðjunni en hann er uppalinn hjá Vesturbæjarstórveldinu. Magnús ætlar að nota hann á miðjunni.

,,Við erum með mjög vel mannaða vörn en þetta er strákur sem getur spilað fleiri stöður og ég er frekar að líta á hann sem miðjumann. Þetta er efnilegur strákur sem er mjög góður liðsstyrkur fyrir okkur."

Magnús og Jökull hafa starfað saman nánast frá upphafi knattspyrnuferils Jökuls því Magnús þjálfaði hann fyrst í sjötta flokki og hefur unnið með honum æ síðan.

,,Ég hef þekkt hann í mörg ár og byrjaði að þjálfa hann þegar hann var í sjötta fólki," heldur Magnús áfram. ,, Við höfum verið oft saman í landsliði og yngri flokkum og meistaraflokki. Ég hef fylgst með honum víða og hann er ekki gamall."

Eins og við sögðum frá í gær er smá ókostur sem fylgir Jökli því hann er í námi í Bandaríkjunum sem gerir það að verkum að hann kemur ekki til liðs við Víkinga fyrr en skömmu fyrir mót og fer aftur utan í ágúst. Við spurðum Magnús út í þetta.

,,Það er ekki æskilegast en ég vissi að við þyrftum á þessum leikmanni að halda og þess vegna gengum við frá þessu," sagði Magnús Gylfason að lokum í samtali við Fótbolta.net.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.