Fotbolti.net
09.01.06 - 11:32
Magnús Már Einarsson

Bellion lánaður til Nice (Staðfest)

Ekki er ólíklegt að Bellion (til vinstri) sé að skoða Fótbolti.net hér ásamt Bojan Djordic.

Ekki er ólíklegt að Bellion (til vinstri) sé að skoða Fótbolti.net hér ásamt Bojan Djordic.

Canon

Mynd: Getty Images

Franska liðið Nice hefur fengið franska kantmanninn David Bellion að láni frá Manchester United út þessa leiktíð og er möguleiki á að liðið kaupi hann í kjölfarið.
Þessi 23 ára Frakki hefur verið í láni hjá West Ham á þessari leiktíð og skorað eitt mark í sjö leikjum fyrir liðið en það kom í hans fyrsta leik fyrir það, gegn Sheffield Wednesday í deildabikarnum.

,,Félagið var áhugasamt að fá hann eins og aðra leikmenn en að lokum ákváum við að velja hann," sagði talsmaður Nice eftir komu Bellion sem kom til United frá Sunderland árið 2003.

Alls hefr hann skorað fjögur mörk í 24 leikjum í ensku úrvalsdeildinni og tvö mörk í sjö leikjum í Meistaradeildinni með Manchester United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.